Davíð & Golíat byrjaði á dögunum að bjóða upp á netspjall á heimasíðu sinni. Hægt er að velja netspjallið hér hægra megin á vefsíðu okkar dg.is og ná þannig beinu sambandi við sölu og þjónustufulltrúa DG. Kerfið er hluti af heildar verkferlakerfi fyrirtækisins sem nýlega var tekið í notkun og gerir starfsmönnum kleift að taka yfir skjá viðskiptavina í gegnum spjallið með samþykki hans. Hægt er að hefja spjall með því að smella á netspjallið vinstra megin á síðunni og óska eftir
að þjónustufulltrúi taki yfir skjáin til að aðstoða við uppsetningu á tölvupósti eða leysa hin ýmsu vandamál. Einnig er netspjallið tilvalin leið til að nálgast frekari upplýsingar um þjónustur okkar og vörur ásamt því að vera góður vetvangur fyrir núverandi viðskiptavini DG sem hafa spurning vegna reikninga ofl.
Nýtt á dg.is - Netspjallið
Windows 8 uppfærslutilboð
Davíð & Golíat býður upp á sérstakt Windows 8 uppfræslutilboð fram að áramótum fyrir 19.900 kr. M.VSK. Innifalið í tilboðinu er Windows 8 uppfærsluleyfi og uppsetning á stýrikerfinu. Hægt er að koma með fartölvur og borðtölvur á tölvuverkstæði Davíð & Golíat Hlíðasmára 10 einnig eru nánari upplýsingar veittar í síma: 519-9911 Tilboðið gildir til 1 janúar 2013. 
Rekstur Hýsis – Netmiðla sameinast Davíð & Golíat ehf.
Starfsfólki Davíð & Golíat og Hýsis var tilkynnt um sameininguna síðastliðin mánaðarmót og var þjónusta og rekstur Hýsis flutt í húsakynni Davíðs & Golíat, Hlíðasmára 10. Með sameiningunni munu viðskiptavinir Hýsir.is fá aukna þjónustu á sviði hýsinga, tölvu og upplýsingatækniþjónustu. Hýsir Netmiðlar er rótgróið fyrirtæki sem hefur verið starfsrækt í tæp 12 ár. Fyrirtækið hefur frá stofnun þess sérhæft sig í að bjóða upp á öflug vefumsjónarkefi, hönnunar- og hýsingarþjónustu fyrir fyrirtæki. þjónusta Hýsis mun haldast óbreytt einu breytingar tengjast auknum þjónustumöguleikum.



